fbpx

Curly Wurly bollakökur

Þessar gómsætu karamellu Curlywurly bollakökur eru bæði „chewy“ og bragðgóðar. Kökurnar eru svo ljúffengar að það þarf varla krem og pottþétt gott að setja deigið í kökuform eða bökunarform og baka.

Magn12 skammtarRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

 2 ½ dl hveiti
 2 dl púðursykur
 1 tsk lyftiduft
 ½ tsk salt
 ½ tsk matarsódi
 90 g smjör, brætt
 2 stk egg
 ½ dl condensed milk
 1 msk ólífuolía
 1 tsk vanilludropar
 3 stk CurlyWurly frá Cadbury
Krem
 100 g Philadelphia rjómaostur
 100 g smjör við stofuhita
 5 dl flórsykur
 3 stk CurlyWurly
 3 msk Rjómi eða meira

Leiðbeiningar

1

Hitið ofninn í 180°C.

2

Blandið saman hveiti, púðursykri, lyftidufti, salti og matarsóda í skál

3

Bætið út í bræddu smjöri, eggjum, condensed milk, ólífuolíu, vanilludropum og hrærið vel saman. Ég nota hrærivélina og hræri á hraðri stillingu þangað til deigið er orðið slétt og fínt.

4

Smátt skerið Curlywurly og bætið saman við með sleif í lokin.

5

Dreifið bollakökuformum í stórt bollakökuform/ bollakökubakka. Ég nota form sem er fyrir 12 kökur.

6

Dreifið deiginu jafnt í bollakökuformin og bakið í 22-26 mínútur eða þar til bollakökurnar eru fullbakaðar. Mér finnst gott að stinga í þær með tannstöngli til að sjá hvort að þær eru orðnar bakaðar.

7

Á meðan kökurnar eru að bakast þá er gott að útbúa kremið.

Krem
8

Bræðið Curlywurly og rjóma í potti. Kælið vel.

9

Hærirð rjómaostinum og smjörinu saman í hrærivél á hröðustu stillingu þar til það verður „flöffý“.

10

Bætið flórsykri og bræddu Curlywurly saman við rjómaostablönduna og hrærið rólega saman. Bætið flórsykri saman við ef ykkur finnst það þurfa.

11

Setjið kremið í sprautupoka og dreifið ofan á allar kökurnar eftir smekk

12

Skreytið kökurnar eftir smekk og njótið.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
PáskasmákökurÞessar eru æði! Ekki nóg með það að vera fullar af mini eggs þá eru þær líka fylltar með súkkulaðismjöri…