Print Options:








Butter Chicken Pizza

Magn1 skammtur

Er eitthvað betra en dýrindis máltíð sem er auðvelt að gera? Skemmtilegt og auðvelt fjölskylduuppáhald, þessi pizza á örugglega eftir að slá í gegn hjá öllum við matarborðið! Butter Chicken karrísósan frá Patak´s gefur henni ljúffengan, grillaðan ilm. Butter Chicken sósan frá Patak´s fæst í öllum helstu matvöruverslunum.

 1 stk Patak´s Butter Chicken sósa 450g
 75 g hreint jógúrt
 10 g pressaður hvítlaukur
 50 g kjúklingabringa
 1 stk pizzabotn
 250 g rifinn ostur
 150 g spínat
 50 g rauðlaukur
 24 stk kirsuberjatómatar
 Salt og pipar eftir smekk
1

Hitaðu ofninn í 220°C

2

Hrærið saman Butter Chicken sósuna, jógúrt, hvítlauk og salt.
Blandið 3 msk (45 ml) af jógúrtsósunni saman við kjúklingabitana; setjið afganginn af jógúrtsósunni til hliðar.
Lokið og marinerið kjúklinginn í 15 mínútur.

3

Eldið kjúklinginn á pönnu.
Dreifið restinni af jógúrtsósunni yfir pizzubotninn.
Stráið 1/2 bolla af osti yfir pizzuna.
Dreifið yfir spínati, lauk, kirsuberjatómötum (skorin hlið upp), og elduðum kjúklingi.
Setjið svo efst 1/2 bolla (125 ml) af osti.
Bakið beint á ofngrindi í 12 til 15 mínútur eða þar til ostur er bráðinn og freyðandi.