fbpx

Butter chicken með villihrísgrjónum og heimagerðu hvítlauks naan brauði

Indverskur matur er líklega sú matargerð sem mér þykir hvað best. Það er hinsvegar ekkert alltaf þörf á því að verja öllum deginum í eldhúsinu þegar okkur langar í góðan indverskan. Hérna nota ég Butter chicken sósuna frá Pataks en poppa réttinn upp með besta naan brauði sem fyrirfinnst! Það tekur enga stund að laga deigið, útbúa hvítlaukssmjör og steikja brauðin á pönnukökupönnu.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Butter Chicken
 3 stk kjúklingabringur
 1 stk lítill laukur skorinn í sneiðar
 1 stk krukka Butter Chicken sósa frá Patak's
 1 tsk smjör
 1 tsk kókosolía
 1 bolli villihrísgrjón frá Rapunzel
 2,50 bollar vatn
 0,50 tsk salt
 salt og pipar
 Hrísgrjón
Heimagert Naan með hvítlaukssmjöri
 4 dl brauðhveiti ásamt aðeins auka
 1 msk sykur
 1 tsk ger
 1 tsk lyftiduft
 ½ tsk salt
 1 dl hrein jógúrt
 1 dl olgt vatn
 2 msk ólífuolía
Hvítlaukssmjör
 75 g smjör
 1 stk hvítlauksgeiri marinn
 ¼ tsk salt
 1 tsk þurrkuð steinselja

Leiðbeiningar

Kjúklingur
1

Skerið lauk í sneiðar og steikið við miðlungshita.

2

Skerið kjúklingabringurnar í frekar stóra bita og brúnið á pönnunni með lauknum. Saltið og piprið eftir smekk.

3

Hellið sósunni yfir og látið kjúklinginn malla þar til hann er gegnumsteiktur.

Berið fram með kóríander ef till.

Hrísgrjón
4

Setjið hrísgrjónin í pott ásamt vatni og salti. Leyfið suðunni að koma upp og lækkið þá niður í lægsta hita. Sjóðið í 45 mín, Varist að hræra í grjónunum á meðan, þau verða mjög klesst við það.

Heimagert Naan með hvítlaukssmjöri
5

Blandið saman þurrefnum. Bætið síðan blautefnum við og hnoðið í nokkrar mín þar til deigið verður samfellt og loðir ekki við hendurnar. Látið hefast í 40 mín. Klípið þá deig sem er eins og ca. golfkúla, fletjið út og steikið á pönnukökupönnu báðar hliðar. Takið brauðið af pönnunni og penslið hvítlaukssmjöri yfir.

Hvítlaukssmjör
6

Bræðið smjör í potti ásamt hvítlauk. Bætið kryddi við.

MatreiðslaMatargerðMerking,

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir

MYNDBAND
Express Tikka Masala kjúlliFljótleg og frábær indversk kjúklingauppskrift að kvöldmat fyrir alla fjölskylduna. Það fer enginn svangur frá borðinu ef þú gerir þessa…
MYNDBAND
Einfaldir kjúklingaleggirKjúklingaleggir með kartöflubátum og Heinz Saucy Sauce er tilvalinn réttur fyrir annasama virka daga. Fljótlegt að útbúa, þar sem allt…