Print Options:








Brownie með OREO kexi smákökudeigi

Magn1 skammtur

Vegan Oreo brownie með smákökudegi, gerist ekki meira djúsí

Brownie deig
 4 Hörfræegg
 4 msk möluð hörfræ
 12 msk vatn
 350 gr vegan smjörlíki eða smjör
 5 dl sykur
 2 tsk vanilludropar
 5 dl hveiti
 2 1/2 kakóduft
 2 tsk lyftiduft
 1 tsk salt
 3 dl Oatly haframjólk
 1 pakki double cream eða venjulegt OREO
Smákökudeig
 100 gr vegan smjör eða smjörlíki
 1 dl sykur
 3/4 dl púðursykur
 1 hörfræegg (má skipta út fyrir 1/4 dl Oatly haframjólk)
 1 msk möluð hörfræ
 3 msk vatn
 2 1/2 dl hveiti
 1/2 tsk matarsódi
 1 tsk vanilludropar
 100 gr suðusúkkulaði eða gott vegan súkkulaði
Brownie deig
1

Byrjið á því að útbúa brownie deigið en þá er byrjað á því bræða saman smjörlíki, sykurinn og vanilludropana á meðalháum hita svo það brenni ekki við.

2

Hrærið í smjörlíkisblöndunni allan tímann.

3

Blandið þurrefnunum í skál og hrærið þau örlítið saman.

4

Hellið smjörlíkisblöndunni, mjólkinni og hörfræeggjunum út í og hrærið vel saman.

5

Hellið deiginu í stálpönnu sem þolir að fara í ofn, eldfast mót eða litla ofnskúffu.

6

Brjótið Oreo kexin of dreifið þeim jafnt yfir kökuna.

Smákökudeig
7

Útbúið smákökudeigið en þá er byrjað á því að þeyta saman smjörlíki, sykur og púðursykur þar til létt og ljóst.

8

Bætið út í hörfræegginu út í og þeytið aðeins lengur.

9

Blandið þurrefnunum saman í skál og bætið þeim út í smjörblönduna og hrærið vel saman. Deigið á að vera frekar klístrað en samt þannig að hægt sé að móta það í höndunum.

10

Dreifið deiginu jafnt yfir alla kökuna og bakið hana í u.þ.b. 45 mínútur í 180°C heitum ofni. Takið kökuna út og leyfið henni að standa í allavega 15 mínútur áður en hún er borin fram.

11

Kakan hentar fullkomlega með Oatly ís.