Print Options:








Brie kjúklingur með stökkri parmaskinku

Magn1 skammtur

Parma­skink­an og brieost­ur­inn með kjúk­lingn­um er blanda sem get­ur ekki klikkað!

 4 kjúk­linga­bring­ur frá Rose Poul­try
 8 sneiðar PARMA-parma­skinka
 1 brieost­ur
 8 msk. sweet chili-sósa frá Blue Dragon
 1 box kirsu­berjatóm­at­ar
 salt og pip­ar
 kletta­sal­at
1

Skerið tómatana í tvennt og látið í ofnfast mót, með sárið upp. Dreypið smá ólífuolíu yfir þá og saltið og piprið. Eldið í 15-20 mínútur við 190°c hita eða þar til þeir eru farnir að mýkjast.

2

Látið parmaskinku inn í ofn og eldið hana þar til hún er orðin stökk.

3

Skerið kjúklingabringurnar í tvennt þannig að þær verði þynnri. Setjið olíu á pönnu og steikið á báðum hliðum í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið.

4

Látið kjúklinginn í ofnfastmót. Skerið ostinn og látið yfir kjúklinginn. Setjið inn í ofn þar til kjúklingurinn er fulleldaður og osturinn bráðinn.

5

Látið klettasalat á disk, tómata og kjúkling. Setjið 2-3 msk af sweet chilí sósu yfir kjúklinginn og leggið stökka parmaskinkuna yfir allt.

Nutrition Facts

Serving Size 4