Létt og ferskt salat með grilluðum kjúklingi, silkimjúku avocado og stökkum grænmeti. Toppað með frískandi hunangs-lime sósu sem gefur réttinum einstakt bragð.
Setjið kjúklingalæri, miðausturlenskt kjúklingakrydd og 1,5 tsk af flögusalti í skál með skvettu af olíu og blandið vel saman. Látið marinerast í 30 mín.
Stillið ofn á 200°C með blæstri.
Dreifið kjúklingalærunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 25 mín eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og búinn að brúnast fallega.
Setjið límónusafa, ólífuolíu, 1 lítið pressað hvítlauksrif, hunang, saxaðan kóríander og smá salt í litla krukku með loki eða tóman hreinan kryddstauk með loki og hristið duglega þangað til allt hefur blandast saman og falleg dressing hefur myndast.
Skerið mangó og tómata í bita, neiðið avocado, rauðlauk og radísur. Skerið kjúklingalærin í bita.
Rífið/skerið salat eftir smekk og veltið upp úr helmingnum af dressingunni. Skiptið salatinu á milli skála og toppið með restinni af hráefnunum og dreipið restinni af dressingunni yfir eftir smekk
Njótið með góðu rósavíni.
0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki