Print Options:








Bollur með hvítu Toblerone og berjafyllingu

Magn1 skammtur

Hvítt Toblerone, Daim kurl og berjarjómi, það þarf ekki að segja meira.

Skotheldar vatnsdeigsbollur
 100 g smjör
 2 dl vatn
 2 dl hveiti
 2 egg
Fylling
 200 g jarðarber/hindber, fersk eða frosin
 6 msk flórsykur
 3 msk sítrónusafi
 5 dl rjómi, þeyttur
Glassúr
 300 g hvítt Toblerone súkkulaði
 100 g Daim kúlur
Skraut
 Saxað Daim súkkulaði
Skotheldar vatnsdeigsbollur
1

Látið smjör og vatn saman í pott hitið þar til blandan er byrjuð að sjóða. Takið þá pottinn af hellunni og bætið hveiti saman við og hrærið þar til myndast hefur deigkúla.

2

Setjið deigið í hrærivél og stillið á minnsta hraðann, svo mesti hitinn fari úr deiginu. Látið eggin saman í skál á meðan og léttþeytið. Hellið þeim svo smám saman út í deigblönduna á lágum hraða.

3

Notið 2 matskeiðar til að móta ca. 8-10 bollur. Látið á ofnplötu með smjörpappír og setjið inn í ofn á 180°C á blæstri í 20-25 mínútur og opnið ekki ofninn fyrr en að þeim tíma liðnum svo bollurnar falli ekki.

Fylling
4

Setjið hindber, flórsykur og sítrónusafa í pott og hitið við vægan hita þar til berin hafa maukast. Kælið.

5

Blandað varlega saman við þeyttan rjóma.

6

Setjið í bollurnar.

Glassúr
7

Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og hellið súkkulaði yfir bollurnar.

Skraut
8

Stáið smátt söxuðu Daim yfir.