Bollakökur með Toblerone bitum

Toblerone bollakökur með Toblerone kremi.

Bollakökur
 Betty Crocker Tempting Chocolate Mix
 4 egg
 125ml matarolía
 230ml vatn
 2 msk Cadbury bökunarkakó
 1 pk Royal súkkulaðibúðingur (duftið)
 170gr gróft saxað Toblerone
Krem
 300gr flórsykur
 6 msk Cadbury bökunarkakó
 2 tsk vanilludropar
 5 msk mjólk
 60gr brætt smjör
 30gr smátt saxað Toblerone

Bollakökur
1

Blandið saman vatni, olíu og eggjum í hrærivélinni.

2

Bætið kökumixinu út í og hrærið á meðalhraða í um 3 mínútur, skafið niður á milli.

3

Því næst fer bökunarkakó og búðingsduft í blönduna og hrært stutt stund til viðbótar, aðeins til að blanda.

4

Hellið að lokum súkkulaðibitunum saman við og blandið með sleif.

5

Skiptið blöndunni niður í um 24 bollakökuform og bakið í 15-20 mín.

Krem
6

Blandið saman flórsykri, kakó vanilludropum og mjólk og hrærið varlega saman. Hellið svo bræddu smjörinu saman við og blandið vel.

7

Smyrjið kúfaðri teskeið á hverja köku og stráið söxuðu Toblerone súkkulaði yfir.