Bakaðar ostakökur minna mig alltaf á Bandaríkin enda er töluvert algengara að ostakökur þar séu af þeirri gerðinni. Innihaldið er töluvert frábrugðið þeim sem við þekkjum kannski betur sem eru þá gjarnan með matarlími og án eggja. Bragðið er algerlega himneskt og áferðin silkimjúk. Súkkulaðikexið passar sérstaklega vel með fyllingunni og rjómakremið fullkomnar svo verkið. Það er hins vegar smávegis kúnst að baka svona ostakökur en ef nokkur atriði eru höfð í huga er það lítið sem ekkert mál. Passa þarf að nota smelluform sem er síðan klætt vel með plastfilmu og álpappír svo ekkert vatn komist inn í formið en best er að baka þær í vatnsbaði. Smá vesen en fullkomlega þess virði. Þær geymast nefnilega líka svo vel í kæli og ekkert mál að frysta þær.
Uppskrift
Hráefni
Leiðbeiningar
Takið fram 20cm lausbotna smelluform. Setjið bökunarpappír í botn og á hliðar.
Hitið ofninn í 175°C.
Setjið kexið í matvinnsluvél eða myljið smátt. Bræðið smjörið og blandið við kexi, sykur og kanil. Þjappið blöndunni í formið og upp á hálfar hliðarnar á forminu.
Bakið kexbotninn í 7 mín. Takið hann þá út og kælið alveg.
Festið káið á hrærivélina. Setjið helminginn af rjómaostinum í skálina, helminginn af sykrinum og maízena mjölið. Hrærið á hægum hraða í ca. 3 mínútur. Bætið þá restinni af rjómaostinum saman við og leyfið vélinni að þeyta á góðum hraða.
Setjið restina af sykrinum saman við ásamt vanillunni og hrærið áfram.
Bætið einu eggi við og hrærið. Skafið niður hliðarnar á skálinni með sleikju og hrærið áfram. Bætið hinu egginu við og hrærið þar til blandan er slétt og samfelld.
Setjið rjómann saman við og hrærið á rólegum hraða rétt svo þannig að hann blandist alveg saman við. Varist að ofþeyta ostablönduna.
Útbúið súkkulaði ganache með því að saxa súkkulaðið og setja í sitthvora skálina.
Hitið 75g af rjóma að suðu og setjið rétt magn af rjóma í skálarnar.
Setjið disk yfir skálarnar og leyfið þeim að standa í 5 mín.
Hrærið þá í ganache blöndunni þar til hún er orðin samfelld.
Skiptið ostablöndunni í tvennt og hrærið dökka súkkulaðinu saman við annan helminginn og mjólkursúkkulaðinu við hinn.
Takið formið með bakaða kexbotninum og hellið ostablöndunum til skiptis í formið. Byrjið á dökka, svo ljósa þar til þið hafið klárað úr skálunum.
Stingið borðhníf ofan í deigið og notið hann til að búa til marmara áferð.
Setjið tvö lög af plastfilmu utan um formið og því næst tvö lög af álpappír. Setjið formið í eldfast mót og hellið sjóðandi vatni í formið þannig að yfirborðið nái hálfa leið upp að brún formsins.
Bakið ostakökuna við 160°C í 1 klst og 45 mínútur eða þar til hún er orðin stíf við kantana en ennþá aðeins „jiggly“ í miðjunni.
Takið kökuna út og kælið á borði í 2 klst. Setjið svo í kæli í a.m.k. 6 klst.
Þegar bera á kökuna fram losið hringinn frá botninum og færið hana á kökudisk. Þeytið rjómann, flórsykurinn og vanilludropana saman og sprautið ofan á kökuna.
Hitið beittan hníf undir heitri vatnsbunu og þurrkið vel af honum, skerið einu sinni niður og endurtakið svo skurðurinn verði hreinn. Berið fram með ferskum berjum og súkkulaðisósu.