Blönduð ber með sítrónusósu

Ber með bragðgóðri sítrónusósu.

Ber
 250 gr jarðaber frá Driscoll's
 125 gr bláber frá Driscoll's
 125 gr brómber frá Driscoll's
 125 gr rifsber frá Driscoll's
 125 gr hindber frá Driscoll's
 2 msk söxuð fersk mynta
Sítrónusósa
 4 stk eggjarauður
 80 ml hvítvín
 70 gr sykur
 Börkur af einni sítrónu
 2 msk sítrónusafi

Ber
1

Skerið jarðaberin í bita, saxið myntuna og blandið saman við berin.

Sítrónusósa
2

Eggjarauður, hvítvín og sykur sett í pott. Rífið niður börk af einni sítrónu og kreistið 2 msk af sítrónu út í. Hrærið yfir hita í 1 mínútu, takið síðan af hitanum og hrærið í 1 mínútu.

3

Hellið sósunni að lokum yfir berin.