Print Options:

Blinis með reyktum laxi

Magn1 skammtur

Blinis er fullkominn forréttur eða smáréttur á hlaðborði! Sums staðar er hægt að kaupa tilbúnar kökur en það er ekkert mál að útbúa þær líkt og hér er gert og finnst mér það að sjálfsögðu betra.

Blinis kökur
 130 g hveiti
 200 g grísk jógúrt
 2 egg
 2 msk mjólk
 1 msk ólífuolía
 1 msk sykur
 1 tsk salt
 1 tsk lyftiduft
Álegg á blinis
 150 g Philadelphia Original rjómaostur
 300 g reyktur lax (sneiddur)
 pipar
 5 sítróna (börkurinn)
 Dill
1

Hrærið öllu saman með písk þar til kekkjalaust.

2

Steikið litlar „pönnukökur“ við meðalháan hita og kælið áður en þið toppið með rjómaosti og reyktum laxi.

3

Smyrjið um ½ tsk. af rjómaosti á hverja köku og piprið.

4

Rúllið lítilli sneið af reyktum laxi upp og setjið ofan á rjómaostinn.

5

Rífið smá sítrónubörk yfir laxinn og toppið með dilli til skrauts.

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size