Print Options:








Bleikju grillvefja í djúsí maríneringu

Magn1 skammtur

Bleikjuvefja sem kemur öllum á óvart, beint á grillið!

 1 pakki Mission vefjur
 2 flök bleikja, roð- og beinlaus
 ½ flaska Blue Dragon teriyaki sósa
 4 msk sesamfræ
 500 g spínat
 paprikur í öllu litum, skornar í strimla
 2 bollar sætar kartöflur, soðnar og skornar í teninga
 4 msk Blue Dragon sweet chili sósa
Sesam majónes
 ½ krukka Heinz majónes
 2 msk Blue Dragon sesamolía
 1 msk sítrónusafi
 1 tsk Blue Dragon engifermauk
 1 tsk Blue Dragon hvítlauksmauk
1

Leggið bleikjubita í teriyaki sósu

2

Útbúið sesam majónes með því að blanda innihaldsefnunum saman

3

Smyrjið vefjuna með sesam majónesi

4

Setjið lúku af spínati og paprikustrimla á vefjuna

5

Veltið soðnum sætum kartöfluteningnum upp úr sweet chili sósunni og setjið á vefjuna

6

Leggið bleikjubitana á vefjuna og stráið sesamfræjum yfir, rúllið henni þétt upp með álpappír

7

Grillið í 4-5 mínútur á hvorri hlið, það tekur um 8-10 mínútur að elda fiskinn, hreyfa vefjuna reglulega.