Print Options:








Bleikja með tómata og ricotta pestó

Magn1 skammtur

Bleikjupanna með pestói og spínati.

 800 g bleikja
 2 msk Filippo Berio ólífuolía
 4 hvítlauksrif, maukuð
 1 chilipipar, saxaður
 1 box kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
 100 g spínat
 190 g Filippo Berio tómata og ricotta pestó
 1 límóna
 Salt og pipar
1

Hitið olíuna á pönnu og steikið bleikjuna í smáum stykkjum á annarri hliðinni.

2

Setjið chilipipar og hvítlauk á bleikjuna og kryddið með salti og pipar.

3

Steikið í ca 2 mínútur og takið bleikjuna af pönnunni.

4

Steikið þá tómatana og spínatið á pönnunni.

5

Bætið pestóinu út á og hrærið vel í.

6

Raðið að lokum bleikjunni á pönnuna á ósteiktu hliðina og látið malla í ca. 5 mínútur.

7

Kreistið límónusafa yfir og sáldrið yfir smávegis af chilipipar eftir smekk.

8

Gott að bera fram með auka pestói og kartöflum eða grjónum.