Einföld bleikja með rjómaosti og krösti, bakað í ofni.
Smyrjið eldfast mót með PAM spreyi. Setjið bleikjuna í formið og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Smyrjið rjómaostinum yfir bleikjuflökin.
Myljið snakkið í poka eða í matvinnsluvél og blandið saman við ólífuolíu.
Dreifið snakkblöndunni yfir bleikjuna og bakið í 20 mínútur við 190°C. Stráið steinselju yfir.