Print Options:








Bláberjastangir

Magn1 skammtur

Bláberjastangir með ferskum bláberjum.

 180 gr sykur (1)
 1 tsk lyftiduft
 400 gr hveiti
 220 gr smjör við stofuhita
 1 egg
 ¼ tsk salt
 Börkur og safi úr einni sítrónu
 500 gr fersk bláber frá Driscoll's
 90 gr sykur (2)
 4 tsk kartöflumjöl
1

Blandið sykri, lyftidufti og hveiti saman í skál.

2

Setjið salt og sítrónubörk út í og blandið saman.

3

Bætið þá egginu og smjörinu og hrærið með K-inu eða í höndunum þar til vel blandað.

4

Setjið fersk bláber, sítrónusafa og kartöflumjöl í aðra skál og veltið berjunum upp úr blöndunni og leggið til hliðar.

5

Spreyið um 20x30cm bökunarform með PAM og klæðið bökunarpappír.

6

Þjappið helmingnum af deigblöndunni í botninn á forminu, hellið berjablöndunni þar yfir og myljið svo restina af deiginu yfir berin.

7

Bakið við 180°C í um 45 mínútur eða þar til bakan fer að brúnast að ofan.

8

Kælið og lyftið upp úr forminu til að skera í bita.