Print Options:








Bjórkjúklingur með rótargrænmeti

Magn1 skammtur

Bragðgóður kjúklingur og grænmeti sem gott er að bera fram með pasta.

 1,5 kg kjúklingur frá Rose Poultry (t.d. læri, bringur, leggir)
 1 laukur, saxaður gróflega
 3 hvítlauksrif, söxuð
 3 gulrætur
 1 steinseljurót
 ferskt timían
 1 msk balsamik edik frá Filippo Berio
 safi af 1/2 sítrónu
 500 ml dökkur bjór
 1 msk kjúklingakraftur, frá Oscar
 2 lárviðarlauf
 1 tsk maizena blandað í smá kalt vatn
 salt og pipar
 fersk steinselja
1

Setjið 2 msk af smjöri í stóran pott. Brúnið kjúklinginn á öllum hliðum við mikinn hita. Takið úr pottinum og geymið.

2

Setjið lauk og hvítlauk í pottinn og steikið í smá stund við meðalhita.

3

Bætið smjöri saman við og látið gróflega sneiddar gulrætur og steinseljurót þar í. Steikið í nokkrar mínútur og bætið þá fersku timían saman við ásamt sítrónusafa.

4

Látið bjór og kjúklingakraft saman við og látið nú malla við vægan hita í 45 mínútur.

5

Undir lokin bætið maizenblöndunni saman við til að þykkja sósuna. Bara lítið í einu þar til hún er orðin passlega þykk.

6

Smakkið til með salti og pipar og stráið saxaðri steinselju yfir allt.

7

Berið fram með tagliatelle pasta eða kartöflumús.