Print Options:








Toblerone brúnka

Magn1 skammtur

Ef ykkur vantar fljótlega og frábærlega góða uppskrift af „brownie“ köku er þessi samsetning málið!

 2 x Betty Crocker Chocolate Fudge mix að viðbættum þeim hráefnum samkvæmt uppskrift á pakka
 100 gr brætt dökkt súkkulaði
 200 gr gróft saxað Toblerone
1

Útbúið tvöfalda uppskrift af kökumixi samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

2

Bætið bræddu suðusúkkulaði saman við og blandið létt.

3

Vefjið söxuðu Toblerone saman við í lokin og hellið í skúffukökuform klætt bökunarpappír (c.a 20 x 30 cm).

4

Kælið, lyftið upp úr forminu, stráið flórsykri yfir til skrauts og skerið í bita.