Print Options:








Beikonvafðar kjúklingabringur með salthnetu- og fetaostafyllingu

Magn1 skammtur

Kjúklingabringur fylltar með geggjaðri fyllingu sem samanstendur af salthnetum, fetaosti og ferskri basilíku.

 6 kjúklingabringur frá Rose Poultry
 1 dl Ultje salthnetur, gróflega saxaðar
 1 dl fetaostur, mulinn
 1 búnt fersk basilíka, söxuð
 1 pakki beikon
1

Skerið í kjúklingabringurnar fyrir fyllinguna.

2

Blandið salthnetum, fetaosti og saxaðri basilíku saman í skál og látið fyllinguna í bringurnar.

3

Vefjið beikoni utanum bringurnar.

4

Setjið í 180°C heitan ofn í 30 mínútur.