Print Options:








Beikonkjúklingur í sinnepsrjómasósu

Magn1 skammturTími í undirbúning1 hr 5 minsTími í eldun15 minsTotal Time1 hr 20 mins

Einfaldur kjúklingur í bragðmikilli rjómasósu.

 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry
 1/2 dl dijon sinnep
 1 tsk reykt paprikukrydd
 salt og pipar
Sinnepsrjómasósa
 200 g beikon, skorið í bita
 2 dl vatn
 1-2 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
 2 msk dijon sinnep
 250 ml matreiðslurjómi
 1-2 tsk timían
1

Blandið dijon sinnepi, paprikukryddi, salti og pipar saman í skál. Setjið kjúklinginn í skál eða plastpoka og hellið marineringunni saman við. Marinerið eins lengi og tími gefst.

2

Steikið beikonbitana á pönnu þar til næstum stökkir. Takið beikonið af pönnunni en skiljið beikonfituna eftir.

3

Brúnið kjúklinginn á pönnunni í 3-4 mínútur á hvorri hlið.

4

Bætið vatni, kjúklingakrafti, sinnepi og beikoni út á pönnuna og hitið.

5

Bætið matreiðslurjóma og timían saman við og látið malla í 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og sósan farin að þykkna.

6

Berið fram með góðu salti og hrísgrjónum eða kínóa.

Nutrition Facts

Serving Size 4