Print Options:








BBQ vefjur með rifnu svínakjöti

Magn1 skammtur

BBQ svínakjöt í vegju þar sem svínakjötið er hægeldað upp úr bjór sem gerir það að verkum að það verður einstaklega safaríkt og mjúkt.

 Hægeldað svínakjöt í BBQ (sjá uppskrift)
 Hrásalat (sjá uppskrift)
 Salat
 Rauðlaukur
 Kóríander
 Um 10 stk. Mission Wrap vefjur með grillrönd
 Sætkartöflu-franskar (meðlæti)
Hægeldað svínakjöt
 Um 1,5 kg svínahnakki
 1 msk. season all krydd/svínakjötskrydd
 50 g púðursykur
 1 msk. salt
 1 tsk. hvítlauksduft
 ½ tsk. pipar
 3 msk. Filippo Berio ólífuolía
 1 flaska Stella Artois bjór (330 ml)
 250 ml vatn
 1 msk. kjötkraftur frá OSCAR
 ½ flaska Sweet BBQ sósa frá Heinz
Hrásalat
 Um 200 g hvítkál (skorið í þunna strimla)
 Um 70 g rauðkál (skorið í þunna strimla)
 Um 70 g gulrætur (skornar í þunna strimla)
 100 g sýrður rjómi
 80 g Heinz majónes
 1 tsk. hvítvínsedik
 1 msk. sykur
 Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
1

Hitið vefjurnar á pönnu eða í álpappír í ofni.

2

Raðið öllu saman í vefjuna eftir smekk og berið fram með sætkartöflu-frönskum.

Hægeldað svínakjöt
3

Hitið ofninn í 150°C.

4

Nuddið season all kryddi/svínakjötskryddi á svínahnakkann og setjið í stóran pott með loki sem má fara í ofninn.

5

Hrærið púðursykri, öðrum kryddum, ólífuolíu, bjór, vatni og kjötkrafti saman í skál og hellið yfir kjötið í pottinum.

6

Setjið lokið á pottinn og inn í ofn í 5-6 klukkustundir, gott er að snúa kjötinu 2-3 x á meðan svo allar hliðar fái að liggja í vökvanum.

7

Þegar kjötið er tilbúið má rífa það niður með göfflum, setja í skál, hella því sem eftir er af soðinu í pottinum yfir og bæta BBQ sósunni við. Hægt er að setja meira eða minna af BBQ sósunni eftir smekk.

Hrásalat
8

Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, ediki og sykri, kryddið eftir smekk.

9

Hrærið síðan öllu saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.

Nutrition Facts

Serving Size 10 vefjur