Það má hins vegar grilla hamborgara á ýmsa vegu og hér kemur ein undursamleg BBQ útfærsla fyrir ykkur sem er súpereinföld og bragðgóð!

Uppskrift
Hráefni
4 stk 170g hamborgari
4 stk hamborgarabrauð
Hamborgarakrydd
Heinz sweet BBQ sósa
8 stk sneiðar af osti
kál
buff tómatar
rauðlaukur
steiktur laukur
pikknikk kartöflusnakk
pepperonipylsur
Leiðbeiningar
1
Skerið niður tómata, lauk og kál, geymið.
2
Grillið hamborgarana á vel heitu grilli, kryddið og penslið með bbq sósu eftir smekk.
3
Setjið 2 ostsneiðar á hvern hamborgara rétt í lokin og hitið brauðin á grillinu.
4
Raðið saman því sem þið óskið á hamborgarann, setjið enn meiri bbq sósu yfir allt saman og berið fram með grilluðum pepperonipylsum, pikknikk og steiktum lauk. Einnig er gott að setja steikta laukinn á milli með grænmetinu.
MatreiðslaBorgarar, Grillréttir
Hráefni
4 stk 170g hamborgari
4 stk hamborgarabrauð
Hamborgarakrydd
Heinz sweet BBQ sósa
8 stk sneiðar af osti
kál
buff tómatar
rauðlaukur
steiktur laukur
pikknikk kartöflusnakk
pepperonipylsur