fbpx

BabyBack rif og kartöflusalat

Sælkerarif með bragðmikilli BBQ sósu og kartöflusalati.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

BabyBack rif
 4 x heil óelduð BabyBack grísarif
 Steikarkrydd
 2 x steikarpoki
 Bull‘s Eye Original BBQ sósa
Kartöflusalat
 650 g soðnar kartöflur
 4 harðsoðin egg
 ½ rauðlaukur smátt saxaður
 1 stöng sellerí smátt saxað
 1 msk. kóríander saxað
 200 g Heinz majónes
 2 msk. Heinz sætt sinnep
 1 msk. sítrónusafi
 1 tsk. salt
 ½ tsk. pipar

Leiðbeiningar

BabyBack rif
1

Hitið ofninn 150°C.

2

Kryddið rifin vel beggja megin og komið þeim fyrir í steikarpoka, 2 rif í hvorn poka.

3

Hægeldið rifin í pokunum í 1,5 klst, takið þau þá út, opnið pokann og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.

4

Penslið örþunnu lagi af BBQ sósu á rifin beggja megin og grillið á vel heitu grilli skamma stund (þetta gert til þess að fá stökka húð á kjötið).

5

Takið af grillinu og penslið 2 x BBQ sósu á báðar hliðar að nýju, skerið niður, stráið smá sesamfræjum yfir til skrauts og berið fram.

Kartöflusalat
6

Skerið kartöflur og egg í 4 hluta.

7

Blandið majónesi, sinnepi, sítrónusafa og kryddum saman í skál þar til kekkjalaust.

8

Blandið þá öllum hráefnunum varlega saman með sleif og geymið í kæli fram að notkun.

Uppskrift frá Berglindi Gotterí.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir