Print Options:








Auðvelt Focaccia brauð

Magn1 skammtur

Auðvelt ítalskt sælkerabrauð.

 5 dl hveiti
 2 1/2 tsk þurrger
 1/2 tsk salt
 2 1/2 dl volgt vatn (sirka við líkamshita)
 Filippo Berio Olífuolía
1

Setjið hveitið, þurrger og salt í stóra skál og hrærið aðeins saman.

2

Gerið holu í miðjuna á skálinni og hellið vatninu í holuna.

3

Hrærið deiginu saman með sleif þar til allt er komið vel saman og ekkert þurrt hveiti er eftir í skálinni.

4

Hellið smá ólífuolía í kringum deigið og flettið því aðeins í höndunum.

5

Setjið plastfilmu, disk eða annað “lok” yfir skálinni (passa að hafa ekki alveg lofþétt lok") og geymið deigið í ísskáp í 10 til 12 tíma eða yfir nótt.

6

Setjið ólífuolíu yfir deigið og hendurnar þegar það hefur fengið að hvíla nægilega lengi í ísskápnum og veltið því aðeins í skálinni og hellið því síðan í eldfast mót eða pönnu sem má fara í ofn og leyfið því að hvíla í tvo til fjóra tíma eða þar til það hefur náð að fylla út í mótið eða pönnuna.

7

Hellið olíu yfir deigið og hendur einu sinni enn og gerið “göt” hér og þar í deigið með fingrunum.

8

Stráið vel af grófu salti yfir brauðið og bakið í 40 mínútur í 200°C heitum ofni eða þar til brauðið er orðið fallega gyllt að ofan.

9

Leyfið brauðinu að kólna aðeins áður en það er skorið eða í allavega hálftíma.

10

Brauðið má bera fram eitt og sér en þá má líka skera það þversum í gegn og nýta það í góðar samlokur.

11

Einnig er gott að setja t.d. ólífur og sólþurrkaða tómata yfir deigið áður en það er bakað.