Print Options:








Asísk núðlusúpa með gyoza og grænmeti

Magn1 skammtur

Það er fátt betra en heit og bragðmikil núðlusúpa, svo ég tali nú ekki um ef hún er toppuð með bragðgóðum dumplings.

 1 msk kókosolía
 4 gulrætur
 1 poki Itsu kjúklinga gyoza dumplings
 1/3 sæt kartafla
 5 meðalstórar kartöflur
 1/2 græn paprika
 1 grænn chili
 1 laukur
 3 hvítlauksgeirar stórir
 3 msk rautt karrýmauk Blue Dragon
 1 dós kókosmjólk, ég notaði Blue Dragon
 2 kjúklingateningar
 1 msk grænmetiskraftur
 2 msk sojasósa
 1 msk sítrónusafi
 3 msk duck sauce (eða 1 tsk hunang en má líka sleppa)
 1L Vatn (má vera aðeins meira eða minna, magn ekki heilagt)
 Hrísgrjónanúðlur eftir smekk
1

Byrjið á því að flysja gulrætur, sæta kartöflu, lauk og kartöflur. Skerið allt grænmetið í litla bita.

2

Setjið kókosolíu í stóran pott og steikið grænmetið í 3 mín ca. á meðal háum hita

3

Hellið vatni yfir og bætið við grænmetiskrafti, karrýmauki, sojasósu og andasósu

4

Látið suðuna koma upp og sjóðið áfram í 20 mín. Bætið þá kókosmjólk út í og sjóðið áfram í 10 mín. Þegar grænmetið er orðið mjúkt maukið þá súpuna með töfrasprota og smakkið til með sojasósu og jafnvel meira rauðu karrýi.

5

Á meðan súpan klárar að malla, sjóðið þá núðlur og kjúklinga dumplings samkvæmt leiðbeiningum en það eru bara örfáar mínútur.

6

Setjið súpuna í skál og núðlur og dumplings yfir eftir smekk.