fbpx

Áramóta ostakaka með hvítri súkkulaði mousse

Þetta er alveg ótrúlega einföld útfærsla af númeraköku.

Magn1 skammturRating
sýna aðeins uppskrift

Uppskrift

Hráefni

Ostakaka
 4 stk My Sweet Deli New York ostakökur
 Hvít Súkkulaði mousse
 Súkkulaðihúðuð jarðaber frá Driscoll's
 Brómber frá Driscoll's
 Myntu súkkulaði plötur
 Æt rauð blóm
 Silfurlitað matarglimmer
Hvít súkkulaði mousse
 2 ½ dl rjómi
 2 ½ dl hvítt súkkulaði
 200 g Philadelphia rjómaostur
 3 msk flórsykur
 1 tsk vanilludropar
 Örlítið salt

Leiðbeiningar

1

Takið kökurnar úr frysti og úr umbúðunum.

2

Stífþeytið rjómann og geymið.

3

Bræðið hvíta súkkulaðið varlega.

4

Þeytið rjómaostinn, 3 msk flórsykur, vanilludropa og salt í skál. Blandið þeytta rjómanum saman við varlega með sleikju.

5

Setjið í kæli í 2 klst og setjið svo í sprautupoka með hringlaga stút (u.þ.b. 1 cm þvermál).

6

Á meðan mousse-in er í kæli skeriði kökurnar í 2019 form.

7

Byrjað er á því að taka 1 köku í einu úr bakkanum og setja á skurðarbretti. Teiknið 2 á fyrstu kökuna þannig að talan er 4 cm breið alla leið. Takið beittan en nettan hníf og skerið útlínurnar og flytjið varlega á langan kökudisk með því að stinga kökuspöðum undir, það gæti verið gott að stinga nokkrum kökuspöðum undir og fá hjálp við að flytja kökuna. Endurtakið fyrir 0, 1 og 9.

8

Þegar allar kökurnar eru komnar á kökudiskinn, takiði sprautupokann og sprautið doppum á kökurnar allar. Raðið súkkulaðihúðuðu jarðaberjunum, brómberjunum, blómunum, myntu súkkulaðinu og silfurlitaða matarglimmerinu á kökuna.

Uppskrift frá Lindu Ben.

DeilaTístaVista

Aðrar spennandi uppskriftir