Print Options:








Andabringur í appelsínusósu

Magn1 skammtur

Andabringur er að okkar mati fullkominn veislu matur.

Önd:
 4 stk andabringur frá Valette
 Salt og pipar
Appelsínu sósa:
 4 msk sykur
 1 dl vatn
 1 dl hvítvín
 1 tsk hvítvínsedik
 4 dl nýkreistur appelsínusafi (u.þ.b. 4 appelsínur)
 Appelsínubörkur af ¼ appelsínu, skorinn í strimla
 400 ml vatn
 1 kúfuð msk andakraftur frá Oscar
 50 g kalt smjör í teningum
 Salt og pipar
 Sósu þykkir eftir þörf
Hunangs gljáðar plómur:
 6 plómur
 50 g smjör
 1 msk hunang
1

Hreinsið bringurnar vel af öllum fjöðrum sem gætu legið í fitunni. Skerið fituna í tígla samanber mynd hér að ofan. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC. Setjið bringurnar á kalda og þurra pönnu, kveikið undir pönnunni og stillið á háan hita, steikið og takið fituna sem myndast af pönnunni jafn óðum svo puran verði stökk og góð. Haldið áfram að steikja þar til puran verður fallega brún. Takið bringurnar af pönnunni, hreinsið það mesta af pönnunni og setjið bringurnar aftur á pönnuna eða í eldfast mót, bakið inn í ofni í 8 mín.

2

Skerið plómurnar í fjóra hluta. Bræðið smjör á pönnu og hitið það vel, án þess að brenna, leggið plómurnar á pönnuna og steikið þær vel á öllum hliðum þannig að þær brúnist svolítið. Lækkið hitann undir pönnunni og dreifið hunanginu yfir. Takið af hitanum.

3

Sósan er útbúin með því að setja sykur og vatn á pönnu og leyft að sjóða þar til karamellan hefur brúnast. Hvítvíninu og hvítvínsedikinu er bætt út á, hrært saman við og soðið þar til sósan er orðin þykkt síróp. Því næst er appelsínusafanum hellt út á og appelsínu berkinum hrært saman við. Sósan er látin sjóða niður u.þ.b. helming. Bætið vatninu og kraftinum út í og þykkið með sósu jafnara, hrærið vel í. Slökkvið undir sósunni og bætið smjörinu út í, hrærið í sósunni og passið að hún sjóði ekki eftir að smjörið hefur farið út í. Smakkið til með salti og pipar.