Print Options:








Alvöru Djöflaterta með besta súkkulaði kreminu

Magn1 skammturTími í undirbúning1 hr 5 minsTími í eldun30 minsTotal Time1 hr 35 mins

Kremið er svo eitthvað allt annað gott. Það er ofur mjúkt og loftmikið, alls ekki væmið heldur kröftugt og bara alveg hrikalega gott verð ég að segja þar sem mig vantar enn og aftur betri lýsingarorð til að lýsa því.

Kökubotnar
 1 ¾ dl bragðlaus Filippo Berio olía
 3 egg
 2 ¼ dl súrmjólk
 4 dl sykur
 1 ¾ dl Cadbury kakó
 4 ¾ dl hveiti
 1 ½ tsk matarsódi
 2 tsk lyftiduft
 1 tsk salt
 1 ¼ dl mjög sterkt kaffi við stofuhita frá Te og Kaffi
Besta súkkulaði kremið
 400 g smjör
 200 g Philadelphia rjómaostur
 600 g flórsykur
 100 g Cadbury kakó
 2 tsk vanilludropar
 1 dl mjög sterkt kaffi við stofuhita frá Te og Kaffi
1

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.

2

Hrærið saman olíu, eggjum og súrmjólk.

3

Í aðra skál blandið saman sykri, kakó, hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti, bætið því svo saman við eggjablönduna.

4

Bætið því næst kaffinu saman við og hrærið öllu þar til blandað saman.

5

Smyrjið tvö 18 cm form og skiptið deiginu á milli formanna. Bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.

6

Kælið botnana og skerið kúfaða toppinn af botnunum þannig þeir eru flatir.

7

Til að gera kremið hrærið smjörið þar til það er létt og loftmikið. Bætið rjómaostinum saman við og því næst flórsykrinum, kakóinu og kaffinu, hrærið þar til létt og loftmikið.

8

Setjið neðri kökubotninn á kökudisk og u.þ.b. ¼ af kreminu á botninn, setjið því næst seinni botninn og hjúpið kökuna með kreminu. Takið svo skeið og búið til áferð með bakinu á skeiðinni með því að þrýsta henni í kremið og toga út.

Nutrition Facts

Serving Size 8