Rjómakenndur pastaréttur sem eldast í einum potti. Svo einfalt og minna uppvask!

Uppskrift
Hráefni
3 msk olíu til steikingar
1/2 geiralausan hvítlauk (kúluhvítlauk)
1 gulan lauk
250 gr sveppi
250 gr kokteil tómata
1,5 msk grænmetiskraftur frá OSCAR
4 msk tómatpúrra frá Hunts
500 gr pastaskrúfur frá De Cecco
500 ml soðið vatn
500 ml Oatly hafrarjómi
1 tsk oregano
1 tsk timjan
1 tsk þurrkuð basilika
1,5 tsk salt
200 gr spínatkál
Leiðbeiningar
1
Saxið hvítlauk, lauk, sveppi og tómata smátt og steikið í olíunni í nokkrar mínútur.
2
Bætið svo öllu hinu útí pottinn fyrir utan spínatkálið.
3
Leyfið réttinum að malla í 10- 15 mínútur eða þar til pastað er orðið mjúkt.
4
Rétturinn eldar sig nánast sjálfur en ágætt er þó að hræra í pottinum af og til svo pastað eldist jafnt og ekkert festist í botninum.
5
Þegar pastað er orðið mjúkt má taka pottinn af hellunni og hræra spínatkálinu samanvið.
6
Berið gjarnan fram með vegan hvítlauksbrauði.
Uppskrift frá Hildi Ómars
Hráefni
3 msk olíu til steikingar
1/2 geiralausan hvítlauk (kúluhvítlauk)
1 gulan lauk
250 gr sveppi
250 gr kokteil tómata
1,5 msk grænmetiskraftur frá OSCAR
4 msk tómatpúrra frá Hunts
500 gr pastaskrúfur frá De Cecco
500 ml soðið vatn
500 ml Oatly hafrarjómi
1 tsk oregano
1 tsk timjan
1 tsk þurrkuð basilika
1,5 tsk salt
200 gr spínatkál