Print Options:

Litríkt ostborgarasalat með heimagerðri hamborgarasósu

Magn1 skammtur

Hvað ef það væri hægt að fá bragðið af djúsí ostborgara en samt væri það salat? Jú, það er bara hægt og ekki nóg með það, það er fáránlega auðvelt að útbúa það og mjög fljótlegt. Sósan er ekta smassborgara sósa og er í raun það sem gerir salatið svona ótrúlega gott. Hakkið er auðvitað hægt að krydda eftir smekk en þetta er mín uppáhalds kryddblanda með þessu salati. Svo er líka hægt að skipta út grænmetinu eftir smekk en þessi samsetning er sú sem ég set á alvöru ameríska grillborgara þegar ég er í þeim gírnum.

Þetta verðið þið bara að prófa!

Hamborgarasósan:
 130 g Heinz létt majónes
 2 msk Heinz tómatsósa
 1 msk Heinz gult sinnep
 56 stk sýrðar dill gúrkur, saxaðar smátt + 1 tsk. af vökvanum
 1 msk laukur, smátt saxaður
 1 tsk reykt paprikuduft
 1 tsk hvítlauksduft
 ½ tsk sjávarsalt
 Nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Salatið:
 400 g nautahakk
 Salt & pipar
 1 tsk hvítlauksduft
 ½ tsk laukduft
 1 tsk paprikuduft
 Iceberg salat
 Tómatar
 Rauðlaukur
 Sýrðar dill gúrkur í sneiðum
 Rifinn cheddar ostur
1

Byrjið á því að útbúa sósuna. Saxið sýrðu gúrkusneiðarnar og laukinn mjög smátt. Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál og geymið í kæli á meðan salatið er útbúið.

2

Skerið grænmetið og setjið til hliðar. Magnið fer algerlega eftir smekk.

3

Hitið steikarpönnu og setjið hakkið á hana þurra, það er óþarfi að setja olíu á hana þar sem fitan í hakkinu nægir. 

4

Kryddið hakkið og steikið þar til það er gegnum steikt. 

5

Raðið grænmeti og hakki á diska eða skálar, stráið cheddar osti yfir og njótið með heimagerðu hamborgarasósunni!

Nutrition Facts

0 fyrir hvað marga, hvað mörg stykki

Serving size